J.P. Morgan Asset Management birti nýverið langtímaspá sína fyrir árið 2027. Þrjú meginstef móta spána: efnahagsleg þjóðernishyggja (e. economic nationalism), hraðari innleiðing tækni, einkum gervigreindar, og tilfærsla fjármagnsflæðis. Lýðfræðilegar takmarkanir á vinnumarkaði draga úr langtímahagvexti að mati bankans en telur hann engu að síður að aukin fjárfesting í gervigreind og útbreiðsla hennar milli atvinnugreina muni styðja við hagnað fyrirtækja og auka framleiðni til lengri tíma.
Í ljósi þessa hækkar bankinn áætlaða árlega ávöxtun bandarískra stórfyrirtækja í 7,5%. Þá er Bitcoin í fyrsta sinn í 31 árs sögu skýrslunnar tekið með í spánni. Athygli vekur að vænt ávöxtun Bitcoin, 10% á ári næstu 10–15 árin, er sú hæsta af öllum eignaflokkum.
Þrír þættir hafa stutt við þróun rafmyntamarkaðarins að mati bankans. Í fyrsta lagi hefur skýrara regluverk skapað traustari umgjörð um markaðinn. Í öðru lagi hefur uppbygging innviða auðveldað fjárfestum aðgengi, meðal annars með kauphallarsjóðum, afleiðumörkuðum og vörslu hjá fjármálastofnunum. Í þriðja lagi bendir J.P. Morgan á vaxtarmöguleika hefðbundinna eigna sem færðar eru á bálkakeðjur, til dæmis peningamarkaðssjóða, en slíkar eignir nema nú þegar um 40 milljörðum Bandaríkjadala.

Í skýrslunni kemur fram að fjárfestar sýni rafmyntum aukinn áhuga. Í könnun einkabankaþjónustu J.P. Morgan meðal fjölskyldusjóða (e. family office) sagðist um tíundi hver svarandi þegar eiga rafmyntir og 17% hyggjast leggja aukna áherslu á stafrænar eignir.
“Investors are nevertheless increasingly exploring crypto assets, supported by more defined regulation and growing infrastructure (e.g. exchange-traded funds, futures, publicly traded crypto companies, options, bank-grade custody and financing markets). With over 60 million coins and tokens, bitcoin is the anchor of the crypto ecosystem, offering transactional security, longevity, improving regulatory clarity and liquidity”
Bankinn er þó enn varfærinn í afstöðu sinni til hlutverks bitcoin í eignasöfnum. Í greiningunni er gert ráð fyrir 55% árlegu flökti, samanborið við 18% hjá bandarískum stórfyrirtækjum. Bankinn bendir þó á að flökt hafi minnkað og telur að hlutverk Bitcoin í eignasöfnum geti styrkst ef sú þróun heldur áfram og fylgnin verður stöðugri, ekki síst eftir því sem regluverk skýrist og seljanleiki og verðmyndun batna. Matið sýnir að Bitcoin er komið inn í þá umgjörð sem margir stofnanafjárfestar styðjast við í langtímaáætlunum sínum.


