Charles Schwab opnar fyrir viðskipti með rafmyntir
Sívaxandi hópur fjármálastofnana hafa bætt rafmyntum inn í þjónustuframboð sitt á síðustu árum
Charles Schwab, eitt stærsta fjármálafyrirtæki í heimi, tilkynnti nýlega áform um að bjóða viðskiptavinum sínum upp á viðskipti með bæði Bitcoin og Ethereum. Þetta mun gera viðskiptavinum, sem telja um 39 milljónir, kleift að stunda viðskipti með rafmyntir á hefðbundnum verðbréfareikningum, í stað þess að þurfa að fara í gegnum kauphallarsjóði (ETF) eða viðskiptavettvanga þriðja aðila.
Schwab bætist með þessu í sívaxandi hóp fjármálastofnana sem hafa bætt rafmyntum inn í þjónustuframboð sitt á síðustu árum. Morgan Stanley undirbýr til að mynda að bjóða upp á bein rafmyntaviðskipti á E*Trade vettvanginum árinu og Bank of America heimilaði ráðgjöfum sínum í byrjun árs að mæla með 1–4% rafmyntahlutfalli í eignasöfnum viðskiptavina. Með sambærilegum hætti hafa JP Morgan og BNY Mellon opnað fyrir viðskipti með rafmyntir í gegnum hefðbundna vörslureikninga. Þannig má segja að rafmyntir liggi nú víða í sömu verslunarhillu og hlutabréf með Apple eða ríkisskuldabréf.
Stærðargráðan gefur áformum sem þessum áþreifanlegt vægi. Schwab stýrir um 11–12 trilljónum Bandaríkjadala í eignum viðskiptavina; ef aðeins 1% af þeim eignum rataði inn í Bitcoin og Ethereum á komandi misserum, jafngilti það yfir 100 milljörðum dala í aukinni eftirspurn. Eftir því sem fleiri stórir aðilar taka upp á því sama mun þetta reikningsdæmi aðeins stækka. Áform Schwab fela ekki síst í sér viðurkenningu bandarískra bankayfirvalda á því að varsla rafmynta innan bankakerfisins sé raunhæf, sem greiðir leiðina fyrir frekari innkomu hefðbundinna fjármálafyrirtækja á markaðinn.
Fyrir vaxandi hóp fjárfesta er spurningin ekki lengur hvort Bitcoin eigi heima í eignasafninu, heldur í hvaða hlutfalli og hvar myntin eigi að liggja í vörslu. Að baki þessari hugarfarsbreytingu liggja tveir straumar sem renna saman úr ólíkum áttum. Yngri kynslóðir, sem munu erfa sífellt stærri hluta fjármagnsins næstu áratugi, kunna að líta á Bitcoin sem sjálfsagðan eignaflokk við hlið hlutabréfa og skuldabréfa. Á sama tíma ríkir óvenjuleg staða í alþjóðahagkerfinu þar sem ört vaxandi ríkisskuldir og hægfara rýrnun á trausti á hefðbundnum gjaldmiðlum (e. fiat) hafa beint augum rótgróinna fjárfesta að eignum sem standa utan við hefðbundna fjármálakerfið.
Allt markar þetta hluta af sömu mynd. Innkoma Schwab umbreytir markaðnum ekki ein og sér en hún markar tímamót. Aðgangur að rafmyntum er ekki lengur aðskilinn frá hefðbundnum fjármálainnviðum heldur orðinn hluti af þeim.



