Google DeepMind veðjar á sama heim og Viska sjóðir
Samstarf Fenris Creations og Google DeepMind varpar ljósi á hvernig stafrænir heimar geta orðið vettvangur fyrir þróun gervigreindar
Áhugaverð þróun á sér nú stað í Vatnsmýrinni, þar sem Fenris Creations, áður CCP, vinnur að uppbyggingu EVE Frontier, nýs leiks sem markar næsta kafla í rúmlega tuttugu ára sögu EVE-heimsins. Félagið er að stórum hluta komið aftur undir íslenskt eignarhald eftir að stjórnendur keyptu það af Pearl Abyss. Samhliða kaupunum kom Google inn í eigendahópinn og Fenris Creations hóf rannsóknarsamstarf við Google DeepMind.
Þróunin hefur sérstaka þýðingu fyrir Visku rafmyntasjóð, sem fjárfesti í EVE Frontier árið 2023 í gegnum gerning sem tengir ávöxtun sjóðsins við rafmyntahagkerfi leiksins. Rafmyntum er ætlað að gegna lykilhlutverki í hagkerfi EVE Frontier, þar sem þær verða notaðar við viðskipti, framleiðslu og aðra verðmætasköpun innan leikjaheimsins. Mögulegt verðmæti fjárfestingarinnar mun því meðal annars ráðast af útbreiðslu leiksins og þeirri virkni sem myndast innan hagkerfis hans.
Fulltrúar Visku funduðu nýlega með stjórnendum Fenris Creations og fóru yfir stöðu verkefnisins og framtíðarsýn félagsins. Fjárfestingin er dæmi um hvernig sjóðurinn leitar tækifæra utan hinna stóru og rótgrónu rafmynta, þar sem ný tækni og ný viðskiptalíkön eru enn að mótast og aðgangur að þeim stendur fáum til boða. Slíkum tækifærum fylgir meiri óvissa, en þau geta jafnframt gefið sjóðnum snertiflöt við þróun sem á sér hvergi annars staðar stað. Í þessu tilviki mætast tvö langtímaþemu sem við höfum fylgst náið með: þróun rafmyntahagkerfa og aukin geta gervigreindar til sjálfstæðrar verkefnavinnu.

Rannsóknarsamstarfið við Google DeepMind varpar skýrara ljósi á hvernig þessi tvö þemu mætast. Samstarfið beinist að rannsóknum á greind í flóknum, lifandi kerfum sem mótast af þátttakendum sjálfum, og DeepMind mun nýta stýrðar útgáfur af EVE-heiminum til að prófa og meta gervigreindarlíkön. Þar má rannsaka hvernig kerfi setja sér markmið, bregðast við breytingum og taka samhangandi röð ákvarðana yfir lengri tíma við aðstæður sem líkjast raunverulegu hagkerfi.
EVE hentar sérstaklega vel til slíkra rannsókna vegna þess að heimurinn hefur í meira en tvo áratugi þróast sem lifandi sýndarhagkerfi. Þar hafa myndast framleiðslukeðjur, hrávörumarkaðir, gjaldmiðlar, bandalög og stjórnmál, auk átaka, eignataps og mannlegrar hegðunar sem getur verið bæði skapandi og ófyrirsjáanleg. Ólíkt skák eða Go á heimurinn sér ekkert lokaástand og engin leið er að vinna hann í eitt skipti fyrir öll. Umhverfið lýtur eigin hvötum og innri lögmálum og býður þannig upp á allt annars konar prófunarskilyrði en verkefni með fyrirfram skilgreindum niðurstöðum.
Þetta snertir eina helstu áskorun fyrirtækja á borð við Google DeepMind, OpenAI, Anthropic og Meta: að þróa gervigreind sem getur munað, gert áætlanir og haldið samhengi yfir langan tíma, við aðstæður þar sem árangur ræðst af röð ákvarðana fremur en einu réttu svari. Eftir því sem gervigreind færist frá samtali yfir í sjálfstæðari verkefnavinnu eykst þörfin fyrir raunhæf umhverfi þar sem hægt er að prófa slíka getu með öruggum og mælanlegum hætti. Fá slík umhverfi eru til, og enn færri eiga sér jafn langa sögu af raunverulegri mannlegri hegðun.
Í því samhengi gæti notagildi EVE náð langt út fyrir leikjaiðnaðinn. Reynist heimurinn gagnlegur sem rannsóknarumhverfi fyrir DeepMind gæti það aukið áhuga annarra á sambærilegum stafrænum hagkerfum. Slík umhverfi gætu orðið tilraunastofur fyrir gervigreind, þar sem hegðun líkana er metin við flóknar aðstæður áður en þeim er beitt í viðskiptum, fjármálakerfum eða öðrum mikilvægum innviðum.
Fjárfesting Visku rafmyntasjóðs í EVE Frontier er tiltölulega lítil í samhengi sjóðsins en með þeim áhugaverðari sem hann hefur ráðist í. Þátttaka Google og samstarfið við DeepMind benda til að það sem byggt hefur verið upp í Vatnsmýrinni, lifandi stafrænn heimur með eigin hagkerfi, geti haft gildi sem nær langt út fyrir leikinn sjálfan. Það er sú þróun sem Viska vill eiga aðild að.



