Fyrirhugað hlutafjárútboð Anthropic gæti orðið einn stærsti viðburður ársins á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Félagið, sem stendur meðal annars að gervigreindarlausninni Claude, hefur á undanförnum misserum byggt upp tekjugrunn með hraða sem á sér fá fordæmi. Verðmatshugmyndirnar sem nú eru til umræðu endurspegla þær miklu væntingar sem bundnar eru við áframhaldandi vöxt félagsins og stöðu þess í alþjóðlegu gervigreindarkapphlaupi.
Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Visku sjóða, ræddi fyrirhugað hlutafjárútboð Anthropic og fleiri vendingar á fjármálamörkuðum í nýlegu viðtali hjá Fjármálakastinu. Hér á eftir er farið yfir helstu atriði úr samtalinu, en jafnframt má nálgast viðtalið í heild sinni í meðfylgjandi hlekk:
Tekjuvöxtur sem á sér fá fordæmi
Í lok árs 2024 var árstekjuhraði Anthropic talinn vera um einn milljarður Bandaríkjadala. Með árstekjuhraða er átt við að nýjustu tekjur félagsins séu yfirfærðar á heilt ár til að sýna þann hraða sem reksturinn er á hverju sinni. Ári síðar var talan komin í um níu milljarða dala og samkvæmt nýjustu áætlunum er árstekjuhraðinn nú um 65 milljarðar dala. Þá hafa komið fram væntingar um að hann geti nálgast 100 milljarða fyrir árslok.
Ef þær tölur ganga eftir hefur Anthropic nær tífaldað tekjuhraða sinn tvö ár í röð. Slíkur vöxtur er sjaldgæfur og nánast fordæmalaus hjá félagi sem þegar aflar tekna upp á tugi milljarða dala.
Þessi hraði gerir hefðbundinn samanburð við rótgrónari fyrirtæki erfiðan. Tekjumargfaldarar geta vissulega gefið mikilvægar vísbendingar um hversu miklar væntingar eru innbyggðar í verð, en þeir segja aðeins hluta sögunnar þegar tekjugrunnurinn margfaldast á skömmum tíma. Við slíkar aðstæður getur félag orðið mun ódýrara á margfaldara án þess að hlutabréfaverðið lækki, einfaldlega vegna þess að tekjurnar vaxa hratt inn í verðmatið.
Miklar væntingar innbyggðar í verðið
Ef Anthropic kemur á markað við tveggja trilljón dala verðmat jafngildir það rúmlega þrjátíuföldum nýjasta árstekjuhraða félagsins. Á flesta hefðbundna mælikvarða er það hátt verð, en matið veltur að verulegu leyti á því hversu lengi núverandi vöxtur getur haldið áfram.
Haldi tekjurnar áfram að aukast með einhverju í líkingu við þann hraða sem sést hefur undanfarið getur margfaldarinn lækkað hratt. Verðmatið felur hins vegar í sér að lítið svigrúm er fyrir vonbrigði í tekjum. Anthropic þarf ekki aðeins að viðhalda forystu sinni heldur einnig að breyta örum tekjuvexti í sjálfbæra framlegð og hagnað.
Til samanburðar aflaði félagið hlutafjár í maí við um 965 milljarða dala verðmat. Útboð við tveggja trilljón dala verðmat fæli því í sér meira en tvöföldun á aðeins nokkrum mánuðum.
Kostnaðarhliðin er enn að mestu óþekkt
Mun minni upplýsingar liggja fyrir um kostnaðaruppbyggingu Anthropic og þar með raunverulega afkomu félagsins.
Þróun og rekstur stærstu gervigreindarlíkana heims krefst gríðarlegrar reiknigetu. Þar við bætist kostnaður vegna gagnavera, orku, sérhæfðs starfsfólks og stöðugrar þróunar nýrra líkana. Fyrirtæki getur því sýnt stórkostlegan tekjuvöxt án þess að sambærileg þróun sjáist í sjóðstreymi eða hagnaði.
Í umræðunni um Anthropic er nær öll áherslan lögð á tekjur og árstekjuhraða. Á hinn bóginn vitum við enn lítið um framlegð félagsins, umfang tapsins eða hversu hratt reksturinn getur nálgast arðsemi. Þegar útboðsgögnin verða birt verður því sérstaklega mikilvægt að greina kostnað vegna reiknigetu, þróun framlegðar og hversu mikið viðbótarfjármagn þarf til að standa undir áframhaldandi vexti.
Hraður vöxtur skapar aðeins varanleg verðmæti ef tekjurnar skila að lokum ásættanlegri ávöxtun á það fjármagn sem lagt er undir.
Samkeppnisstaðan getur breyst hratt
Önnur megináhætta felst í eðli samkeppninnar. Anthropic keppir við OpenAI, Google og xAI, auk fjölda opinna líkana sem geta boðið sambærilega þjónustu á lægra verði.
Tekjurnar geta færst milli fyrirtækja jafnhratt og þær hafa byggst upp. Eitt afgerandi framfaraskref hjá samkeppnisaðila getur breytt markaðsstöðunni á skömmum tíma, sérstaklega ef nýtt líkan reynist betra, ódýrara eða auðveldara í samþættingu við núverandi kerfi fyrirtækja. Tryggð við einstök gervigreindarlíkön er enn tiltölulega lítil og kostnaður við að færa notkun milli þjónustuaðila getur í mörgum tilvikum verið takmarkaður.
Samkeppnin snýst heldur ekki aðeins um gæði líkananna. Fyrirtækin keppa jafnframt um sérhæft starfsfólk, gagnaver, hálfleiðara og aðgang að þeirri reiknigetu sem þarf til að þjálfa og keyra stærstu kerfin. Verð eða framboð reiknigetu getur því haft veruleg áhrif á bæði vaxtargetu og framlegð Anthropic.
Félagið þarf þannig að vinna á tveimur vígstöðvum í senn: verja stöðu sína gagnvart sífellt öflugri samkeppnisaðilum og tryggja næga reiknigetu á kjörum sem gera því kleift að vaxa með arðbærum hætti.
Útboðslýsing Anthropic, sem væntanleg er á næstu dögum, ætti að varpa skýrara ljósi á rekstur félagsins og þær forsendur sem verðmatið hvílir á. Þar verður sérstaklega áhugavert að rýna í eðli tekjuvaxtarins, framlegð, kostnað við reiknigetu og fjármögnunarþörf næstu ára.




