Hlutverk gulls og Bitcoin í dreifðum eignasöfnum
Um hlutverk gulls og Bitcoin í ólíkum markaðsaðstæðum
Ný greining frá Bitwise varpar áhugaverðu ljósi á hlutverk gulls og Bitcoin í eignasöfnum yfir krefjandi markaðstímabil. Þar er skoðað hvernig þessar tvær eignir hafa haft áhrif á frammistöðu eignasafna í helstu niðursveiflum síðustu ára og hvernig þær spila saman yfir heilar markaðslotur.
Niðurstöðurnar eru skýrar. Gull hefur sögulega gegnt mikilvægu hlutverki sem stöðugleikaþáttur þegar óvissa eykst á mörkuðum, á meðan Bitcoin hefur haft mun meira vægi í ávöxtun þegar markaðir snúa til betri vegar. Eignasöfn sem innihéldu bæði gull og Bitcoin stóðu að jafnaði betur en hefðbundin 60/40 eignasöfn þegar litið er yfir bæði niðursveiflur og batatímabil í heild.
Helstu niðurstöður greiningarinnar
Bitwise bar saman hefðbundið 60/40 eignasafn við útgáfur þar sem bætt var við gulli, Bitcoin eða báðum eignum, með áherslu á markaðsáföllin árin 2018, 2020 og 2022.
Viðbót gulls dró úr lækkunum (e. drawdowns) og minnkaði sveiflur í eignasöfnum. Viðbót Bitcoin jók hins vegar langtímaávöxtun, þó á kostnað meiri skammtímasveiflna. Eignasafn sem sameinaði bæði gull og Bitcoin náði bestum árangri þegar horft var til jafnvægis milli áhættu og ávöxtunar yfir heilar markaðslotur.

Í framkvæmd hafa eignirnar því haft ólík en samverkandi hlutverk. Gull hefur veitt vörn þegar markaðir fara í vörn, á meðan Bitcoin hefur verið drifkraftur ávöxtunar þegar áhættusækni eykst á ný.
Núverandi markaðsumhverfi
Nýleg þróun á mörkuðum endurspeglar þetta mynstur vel. Gullverð hefur hækkað verulega í kjölfar aukinnar geopólitískrar og efnahagslegrar óvissu, á meðan Bitcoin hefur sýnt meiri sveiflur en jafnframt sterka frammistöðu á batatímabilum.
Þetta undirstrikar þá staðreynd að Bitcoin hegðar sér síður eins og hefðbundin „örugg höfn“ til skamms tíma, en hefur engu að síður gegnt mikilvægu hlutverki sem eign sem eykur ávöxtun safns yfir lengri tíma.

Áhrif á eignasöfn og ráðgjöf
Greining Bitwise styður við þá sýn að samsetning harðra eigna og stafrænnar skortséignar geti bætt heildarframmistöðu dreifðra eignasafna. Gull takmarkar tap í niðursveiflum, Bitcoin eykur mögulega ávöxtun í bata, og saman hafa eignirnar skilað stöðugri niðurstöðu yfir ólíkar markaðsaðstæður.
Þessi þróun endurspeglast einnig í breyttum áherslum í eignastýringu. Sameiginleg könnun Bitwise og VettaFi sýnir að 32% fjármálaráðgjafa settu rafmyntir í eignasöfn viðskiptavina sinna árið 2025, samanborið við 22% árið áður. Þá sýna gögn frá Coinbase að yngri fjárfestar í Bandaríkjunum verja að jafnaði mun hærra hlutfalli eignasafna sinna í óhefðbundnari eignir eins og rafmyntir en eldri kynslóðir.
Í heild sinni undirstrika þessar niðurstöður að hlutverk Bitcoin í eignasöfnum er að þróast. Ekki sem staðgengill gulls, heldur sem viðbót sem getur styrkt bæði dreifingu og langtímaávöxtun þegar horft er yfir heilar markaðslotur.



