Fátt hefur vakið meiri athygli í tækniheiminum undanfarið en brotthvarf Jensen Huang úr forstjórastóli NVIDIA, en hann sagði af sér nýverið í kjölfar hneykslismáls sem varðar meint ástarsamband við konu sem talin er hafa njósnað fyrir Kínverja, auk sambands við undirmenn innan félagsins. Þrátt fyrir miklar tilkallanir um að hann gangi aftur til starfa, neituðu forsvarsaðilar fyrirtækisins í afkomutilkynningu á þriðjudaginn að það væri möguleiki. Niðurstaðan virðist því vera ljós: leðurjakkinn er kominn á snagann.
Fá fyrirtæki hafa verið jafn samofin stjórnanda sínum og NVIDIA. Jensen stofnaði félagið árið 1993 og hefur stýrt því allar götur síðan, en á þeim tíma hefur NVIDIA breyst úr litlum framleiðanda grafíkörgjörva í hornstein hugbúnaðargeirans með markaðsvirði í kringum 4.000 milljarða dala. Tekjurnar hafa vaxið ævintýralega og hefur hlutabréfaverð ríflega sextíufaldast á síðastliðnum tíu árum. Fyrir stuttu síðan var félagið stærsta skráða félagið í heiminum en hefur á síðustu vikum fallið skarpt í verði.
Sjálfur hefur Jensen rakið hluta velgengninnar til óhefðbundinna stjórnunarhátta, þar sem allt að 60 næstráðendur heyra beint undir hann, engir einkafundir eiga sér stað og ákvarðanir eru teknar á sameiginlegum fundum þar sem allir fá sömu upplýsingar. Sá stjórnunarstíll kann þó nú að reynast félaginu fjötur um fót, enda skilur Jensen eftir sig heldur óhefðbundið skipurit og engan augljósan arftaka.
Jensen hefur verið fyrirferðarmikill í umræðunni um gervigreindaruppbygginguna og hefur NVIDIA jafnframt fjármagnað stóran hluta þeirra verkefna sem hrint hefur verið af stað. Þannig hefur félagið stimplað sig inn sem ákveðin kjölfesta í fjármögnun nýrra gervigreindarverkefna og því gengt mikilvægu hlutverki í fjármögnun gervigreindargeirans. Til marks um það má nefna aðkomu NVIDIA að fjármögnun gagnavera, eftir leiðum sem sumir hafa sett spurningarmerki við. Félagið kaupir hluti í fyrirtækjum í uppbyggingu gagnavera, sem nota svo féð til að kaupa örgjörva af NVIDIA, auk þess sem það gengst í ábyrgðir fyrir gagnaversuppbyggingu þeirra.
Viðbrögð markaða við brotthvarfinu hafa því verið neikvæð og ýtt undir frekari taugatitring í kringum þau félög sem standa að baki gervigreindaruppbyggingunni. Enn er óvíst hvort brotthvarfið muni hafa stórfelld áhrif og hvort landslagið í Kísildalnum breytist til muna. Verðlagning, ef litið er til V/H hlutfalla fyrirtækja í geiranum, endurspegla þetta.
Til skemmri tíma er fátt sem bendir til þess að brotthvarf Jensens Huang breyti miklu um reksturinn. Vöruþróun félagsins er fastmótuð nokkur ár fram í tímann og pantanabókin er sterk, svo næstu tvö árin eða svo eru að mestu tryggð. Almennt er talið að áhrifa á tekjur og hagnað muni ekki gæta að ráði fyrr en í fyrsta lagi árið 2028. Eftir það reynir fyrst á tvennt. Annað er nýsköpun og vöruþróun félagsins, sem margir hafa þakkað Jensen á undanförnum árum. Hitt er hvort félagið haldi samkeppnisforskoti sínu. Það forskot hefur gert því kleift að halda framlegð í um 70% - 75% sem fjárfestar setja nú spurningamerki við hvort haldist til lengri tíma.
Harðnandi samkeppni samhliða viðskiptasamböndum sem standa veikari fótum en áður? Útlit er fyrir að samkeppni harðni á næstu árum. Helstu samkeppnisaðilar NVIDIA eru AMD og svo TPU örgjörvar frá Google. Þá má merkja vaxandi samkeppni frá Kína einnig sem hefur færst nær því að framleiða hágæða tæknibúnað sem Bandaríkin, Taiwan og S-Kórea hafa að mestu staðið ein að. Helsta vörn félagsins hefur verið CUDA, forritunarumhverfið sem nær allir sem þróa gervigreind byggja á og engin samkeppnisaðili hefur náð að keppa við. Mörg stærstu viðskipti félagsins virðast til viðbótar hafa byggst á persónulegum tengslum Jensen við mikilvæga viðskiptamenn og oft verið innsigluð með handabandi.
Yfirburðir NVIDIA hafa auk þess byggst á afhendingaröryggi, sem keppinautar hafa ekki náð að halda í við. Hætt er við að nú geti hægst á og að áhrifanna gæti eftir um 2 ár en væntingarnar gætu þó breyst fyrr. Þá gætu lykilverkfræðingar snúið baki við félaginu, enda hafa margir þeirra efnast vel og keppinautar munu reyna að laða þá til sín. Sögur eru um að margir lykilstarfsmenn hafi hafnað gylliboðum samkeppnisaðila vegna persónulegar tryggðar við Jensen.
Hert eftirlit með sölu til Kína er óhjákvæmilegt, en umdeilt er hversu stór hluti eftirspurnar Nvidia yrði fyrir barðinu. Þá er helsti talsmaður opinna viðskipta við Kína í Washington farinn, sem kann að auka líkur á harðari aðgerðum en hefur tíðkast. Jensen hefur um árabil barist fyrir því að slakað yrði á útflutningshöftum til Kína. Bandarísk stjórnvöld hafa þegar boðað hertar aðgerðir gegn því að kínversk fyrirtæki komist yfir örgjörva í gegnum gagnaver í Suðaustur-Asíu, og fleiri frumvörp í sömu átt liggja fyrir þinginu.
Samkvæmt uppgjörum félagsins námu tekjur af viðskiptavinum með höfuðstöðvar í Kína um 9% af heildartekjum á síðasta fjárhagsári. Þær tölur ná þó ekki til örgjörva sem seldir eru milliliðum utan Kína og fluttir þangað áfram, enda miðar NVIDIA við staðsetningu höfuðstöðva viðskiptavinar en ekki hvar vörurnar enda. Mat á raunverulegri hlutdeild Kína er því nokkuð á reiki. New Street Research telur að allt að 10% teknanna megi rekja þangað, en skortsölufyrirtækið Culper Research áætlar að hlutfallið sé yfir 20% af tekjum af gagnaversörgjörvum.
Á heildina litið er staðan tvísýn og of snemmt að fullyrða um langtímaáhrifin. NVIDIA býr yfir tækniforskoti sem hverfur ekki á einni nóttu. Helstu áhrifin mætti greina út frá þremur sjónarhornum: i) samkeppnisstöðu og vöruþróun, þar sem hætta er á harðnandi samkeppni og hægari takti, ii) hlutverki félagsins sem fjármögnunaraðila í gervigreindargeiranum, sem gæti minnkað, og iii) lagalegri og pólitískri áhættu, sem líklega eykst. Hversu þungt þessir þættir vega ræðst ekki síst af því hvort rannsóknir leiði í ljós að félagið hafi vitað að örgjörvar þess rötuðu til Kína.
Sögulegar hliðstæður hafa takmarkað forspárgildi, enda á staða NVIDIA sér engin fordæmi. Apple missti flugið eftir að Steve Jobs var hrakinn frá félaginu árið 1985 og Starbucks eftir að Howard Schultz steig til hliðar árið 2000, og í báðum tilvikum sneri stofnandinn aftur til að rétta kúrsinn. Þá hefur verið bent á að félög undir stjórn stofnenda skili að jafnaði betri árangri, en sá samanburður litast af lifunarskekkju, þar sem lítið fer fyrir stofnendafélögunum sem lögðu upp laupana. Microsoft undir stjórn Satya Nadella og Apple undir stjórn Tim Cook sýna jafnframt að arftaka getur heppnast prýðilega og markað upphaf nýs kafla.





