Rafmyntagreiðslur í daglegum viðskiptum
Yngri kynslóðir knýja áfram upptöku rafmyntagreiðslna
Ný könnun frá PayPal sýnir að rafmyntagreiðslur eru í auknum mæli að verða hluti af daglegum viðskiptum fyrirtækja. Tæplega 40% bandarískra kaupmanna segjast nú bjóða upp á möguleikann á rafmyntagreiðslum, oft í gegnum milliliði eins og PayPal sem umbreyta rafmyntum yfir í hefðbundinn gjaldmiðil án þess að seljandinn haldi sjálfur á rafmyntum.
Þróunin gæti að hluta endurspeglað breytt viðhorf til rafmynta, þó ber að hafa í huga að mörg fyrirtæki nýta greiðslugáttir sem umbreyta greiðslunni í hefðbunda gjaldmiðla samstundis. Í raun fara margar slíkar greiðslur fram yfir bálkakeðjur í bakgrunni, sem rafmyntir keyra ofan á, án þess að hvorki kaupandi né seljandi geri sér grein fyrir því.
Upptakan virðist mest meðal stærri fyrirtækja og netverslana sem starfa á alþjóðamörkuðum. Þar geta hefðbundin greiðslukerfi verið bæði hægfara og kostnaðarsöm, sérstaklega þegar flytja þarf fjármagn yfir landamæri. Rafmyntagreiðslur bjóða upp á einfaldari og skilvirkari leið til alþjóðaviðskipta.

Við fjölluðum áður um þessa þróun í eldri grein um hlutverk rafmynta í alþjóðaviðskiptum og bentum þar á hvernig rafmyntir geta stytt uppgjörstíma og aukið aðgengi fyrirtækja að viðskiptavinum þar sem hefðbundin bankakerfi eru síður skilvirk. Niðurstöður PayPal-könnunarinnar benda til þess að þessir kostir séu nú farnir að skila sér í breiðari upptöku meðal kaupmanna.

Upptakan er að stórum hluta knúin áfram af yngri kynslóðum. Gögn sýna að áhugi á rafmyntagreiðslum er mun meiri meðal Millennials og Gen Z en hjá eldri aldurshópum. Fyrirtæki af ólíkri stærð greina jafnframt frá aukinni eftirspurn frá yngri viðskiptavinum, sem bendir til þess að breytt neysluhegðun spili lykilhlutverk í vaxandi notkun stafrænnar greiðslutækni.

Á sama tíma hafa umbætur í greiðsluinnviðum gert rafmyntagreiðslur aðgengilegri í daglegum rekstri. Stöðugleikamyntir og samþættar greiðslulausnir hafa einfaldað uppgjör og gert notkun rafmynta hagnýtari fyrir fyrirtæki.
Eftir því sem greiðslukerfi þróast áfram er líklegt að rafmyntagreiðslur starfi í auknum mæli samhliða kortakerfum og bankamillifærslum sem hluti af fjölbreyttara greiðsluumhverfi.


