Raforkukerfi heimsins standa frammi fyrir gríðarlegum áskorunum. Eftirspurn eftir raforku eykst á miklum hraða, knúin áfram af rafvæðingu hagkerfisins og vexti gervigreindar, á sama tíma og framboðið verður sveiflukenndara með auknu vægi endurnýjanlegra orkugjafa. Til að mæta þessum nýja veruleika þarf aukna fjárfestingu í orkuinnviðum, og þá sérstaklega í þeim hlekkjum kerfisins sem tryggja sveigjanleika: orkugeymslu, flutningskerfum og stöðugu afli.
Gervigreindarbyltingin sem nú gengur yfir hvílir á efnislegum grunni. Á bak við hvert mállíkan og hverja fyrirspurn eru gagnaver, kælikerfi og ekki síst raforka. Aðgengi að orku er því orðið grunnforsenda bæði fyrir þróun og útbreiðslu gervigreindar til lengri tíma. Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA) metur að gagnaver heimsins hafi notað um 415 TWh af raforku árið 2024 og gerir nú ráð fyrir að notkunin verði komin í um 1.000 TWh árið 2030, sem er ríflega tvöföldun á sex árum1. Til samanburðar nemur öll raforkuframleiðsla Íslands um 20 TWh á ári2.
Til að mæta aukinni eftirspurn þarf að fjárfesta bæði í nýjum orkuverum og í flutnings- og dreifikerfunum sem koma orkunni til notenda. Sú fjárfesting er þegar komin á fullt. Samkvæmt Alþjóðaorkumálastofnuninni (IEA) fara nú hátt í 60% allrar orkufjárfestingar í heiminum í raforku, eða um 2.000 ma. dollara árið 2026, að meðtalinni rafvæðingu hjá notendum. Vöxturinn er ekki síst í flutnings- og dreifikerfunum, þar sem fjárfesting eykst um nær 20% milli ára og nemur um 550 ma. dollara3.
Raforkukerfið mætir nýjum veruleika
Raforkukerfið var byggt upp við allt aðrar aðstæður en nú eru uppi. Eftirspurn óx jafnt og þétt, og framboðið byggðist að mestu á kola- og gasorkuverum sem auðvelt var að stýra eftir þörfum. Nú reynir á kerfið frá tveimur hliðum.
i) Framboð verður sveiflukenndara með auknu vægi vind- og sólarorku. Samhliða hraðri uppbyggingu vind- og sólarorkuvera hefur kolaorkuverum fækkað. Mörg þeirra eru komin til ára sinna og standast illa samkeppni við ódýrari raforkuframleiðslu úr jarðgasi og endurnýjanlegum orkugjöfum. Framleiðsla vind- og sólarorkuvera ræðst af veðri og birtu og getur því sveiflast óháð eftirspurn. Eftir því sem vægi þeirra eykst reynir meira á getu kerfisins til að halda framleiðslu og notkun í jafnvægi á hverju augnabliki.
ii) Eftirspurn eftir raforku vex ógnarhratt samhliða rafvæðingu og uppbyggingu gagnavera. Í rúma tvo áratugi jókst raforkunotkun í Bandaríkjunum að jafnaði um vel innan við 1% á ári. Nú bætast gagnaver og nýjar verksmiðjur við kerfið á sama tíma og rafbílum fjölgar og húshitun er í auknum mæli rafvædd. Bandarískar veitur gera ráð fyrir að raforkunotkun aukist að jafnaði um 5,7% á ári frá 2025 til 2030 og að hámarksálag á kerfið aukist um 166 GW á tímabilinu, eða um fimmtung. Gert er ráð fyrir að gagnaver ein og sér standi undir rúmum helmingi þeirrar álagsaukningar4.
Raforkukerfið var byggt upp á áratugum þar sem eftirspurn óx hægt og jafnt og framboðið kom frá stöðugum grunnaflsstöðvum. Nú hefur dæmið snúist við: rafvæðing samgangna, húshitunar og iðnaðar, ásamt örum vexti gervigreindar, eykur eftirspurn gríðarlega, á meðan sívaxandi hluti framboðsins kemur frá sveiflukenndum orkugjöfum á borð við vind- og sólarorku
Virðið leitar þangað sem nýjar þarfir rekast á annmarka raforkukerfisins
Ljóst er að gríðarlegrar fjárfestingar er þörf í raforkukerfum heimsins eigi þau að standa undir þeirri uppbyggingu sem nú á sér stað. Ávinningurinn af henni dreifist þó ekki jafnt. Virðiskeðja orkuinnviða er marglaga og hlekkir hennar ólíkir að eðli. Þótt eftirspurn aukist á öllum stigum keðjunnar er ekki sjálfgefið að hún skili sér alls staðar í aukinni arðsemi.
Aukin raforkuframleiðsla er vissulega forsenda þess að hægt sé að mæta vaxandi eftirspurn. Ávinningurinn mun þó ekki síður falla þeim fyrirtækjum í skaut sem leysa úr þeim flöskuhálsum sem nú há raforkukerfinu. Þar vegur þyngst að geta geymt orku þegar framboð er mikið, aukið flutningsgetu þar sem álagið er mest og tryggt stöðuga afhendingu þegar framleiðsla sveiflast eða eftirspurn nær hámarki.
Þegar bið eftir tengingu við flutningskerfið getur numið nokkrum árum verður tíminn verðmætur. Gagnaver hafa því í auknum mæli kosið að tryggja sér eigið afl, og hafa fyrirtæki á borð við Bloom Energy og GE Vernova notið góðs af þeirri þróun. Bloom framleiðir efnarafala sem setja má upp á lóð gagnavera, og hjá GE Vernova ná biðlistar eftir gashverflum nokkur ár fram í tímann. Hlutabréfaverð beggja félaga hefur hækkað talsvert undanfarin misseri.
Að sama skapi hefur aukin eftirspurn eftir stöðugri grunnorku beint sjónum að kjarnorku á ný, enda verður framboð hennar ekki aukið í skyndi. Tæknifyrirtækin hafa gert samninga til allt að 20 ára um kaup á kjarnorku. Áhrifanna gætir einnig á úranmarkaði, þar sem námuframleiðsla hefur um árabil ekki annað þörf kjarnorkuvera.
Þá hafa rafhlöður orðið sífellt mikilvægari hluti raforkukerfisins. Verð á rafhlöðum til orkugeymslu lækkaði um 45% á síðasta ári, í um 70 Bandaríkjadali á kWh5, og gert er ráð fyrir að um 2.700 GWh af geymslugetu bætist við á árunum 2026–2030. Að okkar mati gildir þó svipað lögmál hér og í sólarorku. Verðlækkunin er að stórum hluta drifin af umframframleiðslugetu í Kína, og er líklegt að ávinningurinn falli fremur í skaut notenda rafhlaðnanna en framleiðenda þeirra.
Þegar á heildina er litið bendir flest til þess að aukin raforkuþörf, ekki síst vegna uppbyggingar gagnavera, kalli á umfangsmikla fjárfestingu í raforkukerfum heimsins á komandi árum. Uppbyggingin mun þó taka tíma, enda ráðast takmarkanir kerfisins ekki síður af framleiðslugetu, leyfisveitingum og afhendingartíma en af aðgengi að fjármagni.
IEA (2025). Energy and AI, https://www.iea.org/reports/energy-and-ai; IEA (2026). World Energy Outlook 2026.
Umhverfis- og orkustofnun. Raforkuvinnsla á Íslandi eftir orkugjafa. https://orkustofnun.is/en
IEA (2026). World Energy Investment 2026. https://www.iea.org/news/impacts-of-middle-east-conflict-set-to-reshape-energy-investment-plans-as-disruptions-put-focus-on-security
Grid Strategies (2025). Power Demand Forecasts Revised Up for Third Year Running, Led by Data Centers. https://gridstrategiesllc.com/project/load-growth-forecast/
BloombergNEF (2025). Lithium-Ion Battery Pack Prices Fall to $108 Per Kilowatt-Hour, Despite Rising Metal Prices. https://about.bnef.com/insights/clean-energy/lithium-ion-battery-pack-prices/





