Saga tæknibyltinga sýnir að útbreiðsla nýrrar tækni fylgir gjarnan S-kúrfu. Hver bylgja byggir á þekkingu og innviðum þeirrar fyrri og leggur um leið grunn að þeirri næstu. Gervigreind er nú á hröðu vaxtarskeiði og gæti sem grunntækni flýtt framförum í róbótatækni, líftækni og efnisvísindum. Í hraða breytinganna felast jafnframt tækifærin.
Hluti af starfi okkar hjá Visku, sem og allra þeirra sem starfa á sviði fjárfestinga, felst í að reyna að kortleggja hvernig heimurinn gæti litið út á morgun, eftir ár eða eftir áratug.
„[…] the present is not what moves stock prices, change does. Try to envision a different world 18 months from now and where securities prices would trade given the world you envision.” - Stan Druckenmiller, Sohn Investment Conference árið 2022
Að spá fyrir um framtíðina er ófullkomin íþrótt og er mannshugurinn í raun illa til þess fallinn. Við höfum tilhneigingu til að líta á framtíðina sem línulega framlengingu nútíðarinnar og kjósum jafnframt hið kunnuglega fram yfir breytingar, tilhneigingu sem nefnist “status quo bias”. Óvissa reynist okkur óþægileg og þegar hún eykst leitum við í huglæg akkeri, kunnuglegar hugmyndir sem gera heiminn fyrirsjáanlegri. Af sömu ástæðu geta fyrirsagnir fengið aukið vægi í verðmyndun á mörkuðum þegar óvissa eykst.
Það er sú tilhneiging fólks, og þar með markaða, sem kann jafnframt að skapa tækifæri þegar breytingar eiga sér stað hratt. Á undanförnum fimm árum hefur sjálfvirknivæðing sótt fram með áður óþekktum hraða og tækniframfarir skapað möguleika sem erfitt hefði verið að sjá fyrir aðeins nokkrum árum.
Fáir fjárfestar um aldamótin hefðu getað séð fyrir hvernig internetið myndi margfalda notagildi einkatölvunnar og leggja grunn að snjallsímum, skýjalausnum og stafrænum vettvangi. Lykilhugtakið er því grunntækni, tækni sem eykur afkastagetu annarrar tækni og verður sjálf undirstaða næstu kynslóðar nýsköpunar.
Hvað gerist þá þegar gervigreindarlíkön taka þátt í þróun nýrra gervigreindarlíkana og róbótar smíða róbóta sem aftur smíða enn fullkomnari róbóta?
Gagnlegt er að líta til sögunnar, enda veitir hún áreiðanlegustu tiltæku vísbendingarnar um hvernig sambærilegar breytingar kunna að þróast. Framtíðin á sér þó sjaldnast nákvæm fordæmi; eins og gjarnan er haft á orði endurtekur sagan sig ekki, en hún rímar. Þótt tæknibyltingar síðustu áratuga hafi verið ólíkar að eðli og umfangi hefur framgangur þeirra gjarnan fylgt svipuðu mynstri, sem lýst er með svokallaðri S-kúrfu:
Tæknin er dýr í upphafi, fyrirferðarmikil og lítið útbreidd. Framfarir virðast hægar á meðan unnið er úr grundvallaráskorunum og tæknin mótuð. Fyrstu tilraunir með sjálfknúin ökutæki hófust til dæmis árið 1672, en það var ekki fyrr en árið 1769 sem fyrsta gufuknúna ökutækið sem gat flutt fólk leit dagsins ljós.
Í kjölfarið tekur yfirleitt við tímabil hraðrar nýsköpunar, aukinnar virkni og mikillar útbreiðslu. Vélar og bifreiðar urðu smám saman betri, ódýrari og fýsilegri kostur en hestvagnar. Eftir því sem tæknin varð aðgengilegri jókst eftirspurnin hratt og bílaeign varð almenn.
Þegar markaðurinn þroskast tekur hins vegar að hægja á marktækum framförum, enda fækkar jafnframt nýjum viðskiptavinum. Þá hefur tæknin náð efri hluta S-kúrfunnar og markaðurinn nálgast mettun.
Á þeim tímapunkti getur ný tækni, með sína eigin S-kúrfu, byggst ofan á þá fyrri og hrundið af stað nýju vaxtarskeiði. Á myndinni hér að neðan má sjá hvernig tæknibyltingar síðustu aldar er í samræmi við ofangreint.
Hver ný tækni nýtir þá þekkingu, innviði og getu sem fyrri tæknibylgjur skilja eftir sig og verður jafnframt grunnur þeirrar næstu. Þróunin er því ekki röð einangraðra uppfinninga heldur keðjuverkun þar sem hvert framfaraskref styttir leiðina að því næsta og hraði breytinganna eykst.
Tökum einkatölvuna sem dæmi. Á áttunda áratugnum voru tölvur stór og dýr reiknitæki, einkum notuð af fyrirtækjum og opinberum stofnunum við afmörkuð verkefni. Með tækniframförum urðu þær smærri, ódýrari og notendavænni, en notagildi þeirra fyrir almenn heimili var lengi takmarkað.
Internetið markaði upphaf nýrrar S-kúrfu sem byggði ofan á þeirri fyrri. Það margfaldaði notagildi tölvunnar og stækkaði markaðinn hratt; fjöldi einkatölva jókst úr um 100 milljónum um miðjan tíunda áratuginn í vel yfir milljarð. Þegar tölvueign varð almenn tók hins vegar að hægja á bæði útbreiðslu og tækniframförum.
Á sama tíma var næsta S-kúrfa þegar farin af stað. Snjallsíminn, einkatölva í vasanum, fylgdi sambærilegu þróunarferli en nálgast nú einnig mettun: notendur skipta milljörðum, nýjum viðskiptavinum fækkar og framfarir verða stigvaxandi fremur en byltingarkenndar.

Eitt skýrasta mynstur undanfarinna áratuga er að tæknibreytingar eiga sér stað á sífellt skemmri tíma. S-kúrfurnar þjappast saman: styttri tími líður frá fyrstu tilraunum þar til tæknin nær almennri útbreiðslu og næsta þróunarbylgja tekur við. Ástæðan er sú að ný tækni byrjar sjaldnast frá grunni heldur byggir á reiknigetu, innviðum, aðfangakeðjum og þekkingu sem þegar eru til staðar. Hugbúnaði má dreifa um allan heim á augabragði, fjármagn færist hratt að nýjum tækifærum og notendur eru vanari því að tileinka sér nýjar lausnir.
Því liggur beinast við að spyrja: Hvar liggur gervigreindin á S-kúrfunni?
Þróunin undanfarin ár ber fremur merki hraðs vaxtarskeiðs en þroskaðs markaðar. Í hverri viku koma fram ný sprotafyrirtæki, gervigreindarlíkön og rannsóknir, og fyrirtæki sem virðist hafa náð afgerandi forskoti getur skömmu síðar staðið frammi fyrir því að nálgun þess sé orðin úrelt. Opinn hugbúnaður, nýr vélbúnaður, breytt regluverk og tæknileg stökk geta endurraðað allri virðiskeðjunni á örfáum ársfjórðungum. Umrótið er því ekki aðeins fylgifiskur þróunarinnar heldur skýr vísbending um að tæknin sé enn á mótunarskeiði, þar sem forystan er ótrygg en möguleikarnir miklir.
Demis Hassabis, forstjóri Google DeepMind, hefur lýst mögulegu umfangi breytinganna með eftirfarandi hætti:
The magnitude of this technology’s impact will be unprecedented, perhaps 10x of the Industrial Revolution at 10x the speed. It will help us solve some of the biggest problems society faces from accelerating drug discovery to developing new clean energy sources to creating novel advanced materials. We could even reach a point where resources are no longer the limiting factor for human progress, leading to an amazing new era of abundance
Ef sú sýn rætist er áhrifamesti hluti þróunarinnar enn fram undan. Með almennri gervigreind gæti tæknin færst úr stafrænum heimi yfir í hinn efnislega, þar sem hún knýr áfram róbótavæðingu og sjálfvirkni en hraðar jafnframt framförum í líftækni, lyfjaþróun, orku og efnisvísindum. Gervigreind yrði þá ekki aðeins sjálfstæð tæknibylting heldur grunntækni sem hrindir fjölda S-kúrfa á stað.




