Söluþrýstingur minnkar á rafmyntamörkuðum
Bitcoin hækkar á ný eftir miklar lækkanir síðustu mánuði og innstreymi stofnanafjárfesta heldur áfram að aukast.
Bitcoin fór stuttlega yfir 75.000 dollara fyrr í vikunni sem er hæsta gildi síðan í byrjun febrúar. Verðið er enn talsvert undir hámarki síðasta hausts en það virðist vera breyting á trendi og margt sem bendir til þess að seljendur séu orðnir þreyttir (e. sellers exhaustion) og kaupáhugi sé að vakna á ný.
Áhugaverðast er kannski hvernig Bitcoin hefur hegðað sér í gegnum óróann undanfarið. Átökin tengd Íran sem byrjuðu í lok febrúar sendu olíuverð upp og fjárfesta í átt að hefðbundnum „safe-haven“ eignum eins og gulli. En gull hefur síðan lækkað um tæp 12% í þessum mánuði á meðan Bitcoin hefur hækkað um rúm 5%. Þetta er í fyrsta skipti í langan tíma þar sem Bitcoin stendur sig betur en gull og það gefur góð fyrirheit inn í komandi misseri.

Innflæði frá fagfjárfestum hefst á ný
Ef verðþróunin segir eina söguna þá segir flæðið aðra jafn mikilvæga sögu. Heildarinnflæði í bandaríska Bitcoin ETF-sjóði í mars hingað til er 1.477 milljónir dollara og þessi vika er nú sú þriðja í röð með jákvæðu flæði. IBIT-sjóður BlackRock stóð einn að langstærstum hluta af innflæðinu.

Hvað er framundan?
Rafmyntamarkaðir virðast vera að finna jafnvægi eftir miklar verðlækkanir síðustu mánuði. Söluþrýstingur hefur minnkað mikið, innflæði er jákvætt og markaðsaðilar virðast smám saman vera að fá sjálfstraustið á ný. Þeir sem hafa fylgst með rafmyntamörkuðum til lengri tíma vita af eigin reynslu hversu hratt hlutirnir geta snúist við þegar straumurinn snýr.


