Intercontinental Exchange, eigandi NYSE-kauphallarinnar, hyggst opna bandarískum fjárfestum aðgang að afleiðusamningum á rafmyntakauphöllinni Hyperliquid. Samstarfsaðili ICE í verkefninu er TRADE[XYZ], en Stan Druckenmiller er í hópi fjárfesta félagsins. Tíðindin eru til marks um að bálkakeðjutæknin sé að verða hluti af innviðum hefðbundinna fjármálamarkaða.
Þann 29. október tilkynnti Intercontinental Exchange (ICE), eigandi New York-kauphallarinnar (NYSE) og ein stærsta kauphallarsamstæða heims, að félagið hefði gert bindandi samkomulag við TRADE[XYZ] um að koma á fót nýjum markaði í Bandaríkjunum fyrir ótímabundna framtíðarsamninga (e. perpetual futures). Markaðurinn verður eftirlitsskyldur og reistur á innviðum Hyperliquid, dreifstýrðrar rafmyntakauphallar sem hingað til hefur verið lokuð bandarískum notendum.
Gangi áformin eftir munu bandarískir fjárfestar geta átt viðskipti allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, með samninga tengda hlutabréfum, hlutabréfavísitölum, hrávörum, gjaldmiðlum og rafmyntum. Áformin eru háð samþykki bandaríska afleiðueftirlitsins (CFTC) og ekki liggur fyrir hvenær markaðurinn tekur til starfa.
Hvað eru ótímabundnir framtíðarsamningar?
Hefðbundnir framtíðarsamningar, til dæmis á hrávörumörkuðum, hafa ákveðinn lokagjalddaga. Þegar hann nálgast færist verð samningsins að markaðsverði undirliggjandi eignar og fjárfestar sem vilja halda stöðu sinni þurfa að velta henni yfir í nýjan samning. Ótímabundnir framtíðarsamningar hafa engan lokagjalddaga og má halda þeim opnum eins lengi og tryggingar leyfa.
Sérkenni samninganna felst í því hvernig verði þeirra er haldið í takt við stundarvirði (e. spot) undirliggjandi eignar. Það er gert með reglulegum greiðslum milli fjárfesta, svokölluðum fjármögnunargreiðslum, sem líkja má við vexti. Sé samningurinn dýrari en undirliggjandi eign greiða þeir sem eiga gnóttstöðu (e. long) þeim sem eiga skortstöðu (e. short), en sé hann ódýrari snýst dæmið við. Fyrir þann sem greiðir jafngilda greiðslurnar fjármögnunarkostnaði, en fyrir þann sem fær þær eru þær ávöxtun. Þannig skapast hvati til að taka þá stöðu sem færir verð samningsins aftur nær verði eignarinnar.
Samningarnir ruddu sér fyrst til rúms á rafmyntamörkuðum en hafa á undanförnum misserum í auknum mæli verið nýttir fyrir olíu, gull og hlutabréfavísitölur. Þar er uppgjör í stöðugleikamynt og viðskipti möguleg allan sólarhringinn, einnig um helgar. Þetta mun að öllum líkindum verða grunnurinn að táknvæddum fjármálaafurðum sem munu ganga kaupum og sölum á bálkakeðjuinnviðum. Þessar fjármálaafurðir ryðja sér nú í auknum mæli til rúms á hefðbundnum fjármálamörkuðum, eins og sést á myndinni hér að neðan.
Mikil viðurkenning fyrir bálkakeðjutæknina
Stærstu tíðindin felast í vali ICE á samstarfsaðila. Í stað þess að byggja eigin bálkakeðjuinnviði frá grunni kýs ein umsvifamesta kauphallarsamstæða heims að reisa nýjan markað á innviðum rafmyntakauphallar. Það er mikil viðurkenning fyrir Hyperliquid og fyrir bálkakeðjur sem innviði fjármálamarkaða almennt.
Tíðindin vöktu einnig mikla athygli vegna aðkomu Stanley Druckenmiller, eins virtasta makrófjárfestis heims. Í fyrstu færslu sinni á samfélagsmiðlinum X greindi hann frá því að hann væri meðal fjárfesta í TRADE[XYZ] og hygðist sjálfur nota vöruna í eigin fjárfestingum. Gengi HYPE, rafmyntar Hyperliquid, hækkaði um tæp 20% í kjölfarið.
Samstarfið er hluti af víðtækari þróun. CFTC hefur þegar heimilað ótímabundna framtíðarsamninga á bitcoin á öðrum viðskiptavettvöngum vestanhafs, og fleiri aðilar, þar á meðal móðurfélag rafmyntakauphallarinnar Kraken, vinna að því að bjóða bandarískum viðskiptavinum slíka samninga á grunni Hyperliquid. Þróunin mætir þó einnig mótstöðu. CME Group, helsti keppinautur ICE, hefur höfðað mál gegn CFTC vegna þess hvernig samningarnir eru flokkaðir. Verði bálkakeðjur engu að síður að viðurkenndum innviðum fjármálamarkaða, þar sem kauphallir loka aldrei og uppgjör fer fram í rauntíma, gætu viðskipti með fjármálagerninga tekið miklum breytingum frá því sem við þekkjum í dag.






