Taktu þátt í uppbyggingu Visku sjóða
Fjölbreytt starf í sjóðastýringarfélagi þar sem greining og gervigreind spila lykilhlutverk
Viska sjóðir er rekstraraðili sérhæfðra sjóða og rekur tvo sjóði með ólíkar fjárfestingaáherslur. Annar sjóðurinn er með áherslu á rafmyntir, en hinn á fjárfestingar í erlendum hlutabréfum sem tengjast meðal annars innviðum gervigreindar og hrávörum.
Viska sjóðir leita að metnaðarfullum og fjölhæfum starfsmanni í fullt starf til að ganga til liðs við teymi félagsins. Starfið er fjölbreytt og snýr bæði að daglegum rekstri sjóða, greiningarvinnu og þróun nýrra lausna innan sjóðastýringar, þar á meðal markvissri nýtingu gervigreindar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining á mörkuðum, eignaflokkum og einstökum fjárfestingatækifærum
Bakvinnsla og umsýsla sjóða, þar á meðal gagnavinnsla og samskipti við þjónustuaðila
Aðstoð við undirbúning efnis fyrir sjóðfélaga, skýrslur, greinaskrif og innri greiningar
Aðkoma að þróun og innleiðingu lausna sem nýta gervigreind og sjálfvirkni til að bæta ferla, ákvarðanatöku og rekstur félagsins
Ýmis önnur tilfallandi verkefni í vaxandi sjóðastýringarfélagi
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í fjármálum, hagfræði, verkfræði, stærðfræði eða tengdum greinum (kostur, en ekki skilyrði)
Reynsla af störfum á fjármálamarkaði er kostur
Greiningarhæfni og færni í að vinna með töluleg gögn
Brennandi áhugi á fjármálamörkuðum og fjárfestingum, þar á meðal rafmyntum
Góð samskiptahæfni
Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
Um starfið
Um er að ræða fullt starf sem veitir einstakt tækifæri til að taka virkan þátt í uppbyggingu og þróun framsækins sjóðastýringarfélags. Réttur einstaklingur fær svigrúm til að móta hlutverk sitt og axla ábyrgð í nánu samstarfi við stjórnendur félagsins.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um í gegnum Alfreð, sjá hlekk á starfsauglýsinguna hér: https://alfred.is/starf/fjoelbreytt-starf-i-sjodastyringarfelagi



