Anthropic undirbýr það sem gæti orðið stærsta hlutafjárútboð sögunnar, þar sem verðmat félagsins gæti numið 2.000 ma. dala. Útboðslýsingin dregur upp mynd af félagi sem vex á ógnarhraða, brennir gríðarlegu fjármagni og býr yfir tækni sem gæti breytt heiminum, en jafnframt ógnað mannkyninu.
Fyrirhugað hlutafjárútboð Anthropic, félagsins á bak við gervigreindarlíkanið Claude, hefur verið í kastljósinu undanfarið, bæði vegna hraðrar framþróunar líkanna félagsins og viðvarana stjórnenda félagsins um áhættuna sem tækninni fylgir. Dario Amodei, forstjóri Anthropic, og fleiri leiðtogar gervigreindargeirans hafa ítrekað varað við að öflugustu líkönin geti þróast hraðar en geta samfélagsins til að skilja þau, stýra þeim og koma í veg fyrir misnotkun þeirra.
Kröfur um auknar öryggisráðstafanir hafa orðið sífellt háværari innan geirans. Dario Amodei tilkynnti fyrr í mánuðinum að félagið hygðist innleiða frekari öryggisráðstafanir, meðal annars með óháðum úttektum þriðju aðila á þróuðustu líkönum þess. Jafnframt hvatti hann önnur fyrirtæki í geiranum til að hægja á framþróun öflugustu líkananna þar til öryggisprófanir og eftirlit hefðu betur náð að halda í við tæknina. Sam Altman, forstjóri OpenAI, lýsti yfir stuðningi við tillöguna og Elon Musk, stofnandi xAI, tók einnig þátt í umræðunni eins og sjá má á færslu á X fyrr í mánuðinum:
Kjarna skýrslu Dario má draga saman í eftirfarandi þremur setningum:
“Not building the technology deprives humanity of benefits or simply places AI in the hands of authoritarian powers, while building it too fast is reckless… We must slow the pace at which we improve the capabilities of AI models… Pacing does not mean halting model training or technical progress.”
Eftir því sem gervigreindarfulltrúar verða öflugri aukast líkurnar á að þeir geti blekkt fólk, um leið og erfiðara verður að fylgjast með hegðun þeirra. Á hinn bóginn gæti það kostað okkur mikilvægar tækniframfarir að hægja á þróuninni, ekki síst í heilbrigðisþjónustu. Því verður sífellt erfiðara að samræma markmið frumkvöðla á borð við Amodei og Altman um að þróa ofurgreind kerfi við kröfur um öryggi. Áhættan sem fylgir því að smíða slík líkön kann einfaldlega að vera of mikil.
Í gær vakti það verulega athygli þegar drögum að útboðslýsingu Anthropic var lekið til fréttaveitu Reuters. Þar er dregin upp mynd af tækni sem gæti umbreytt heiminum en jafnframt skapað stórfellda áhættu verði þróun hennar ef ekki er bundið rétt um hnútana. Anthropic gengur raunar svo langt að nefna mögulega „tilvistarógn við mannkynið“ (e. existential risk to humanity) meðal þeirra áhættuþátta sem fjárfestar þurfa að horfast í augu við.
Auk þess koma fram nokkur áhugaverð atriði um fjárhagsstöðu félagsins og þær forsendur sem liggja að baki útboðinu.
Fjögur lykilatriði úr skráningarlýsingu Anthropic
Anthropic vex á hraða sem á sér fá fordæmi, en gríðarlegur kostnaður við þróun og rekstur fremstu gervigreindarlíkana gerir óljóst hvort rekstur félagsins sé sjálfbær enn sem komið er. Tekjur nær tólffölduðust í 4,6 ma. dala árið 2025, en á sama tíma fór rekstrartapið yfir 8 ma. dala og var því nær tvöfalt hærra en heildartekjurnar. Vöxturinn er því tilkomumikill, en arðsemi félagsins veltur á því hvort tekjurnar geti að lokum vaxið hraðar en kostnaður við reikniafl, innviði og áframhaldandi þróun líkananna.
Verðmat yfir 2.000 ma. dala og mjög metnaðarfull vaxtaráætlun. Til að réttlæta slíkan verðmiða þarf Anthropic að viðhalda verulegum tekjuvexti, bæta framlegð verulega og umbreyta 518 ma. dala innviðaskuldbindingum í arðbæran rekstur. Slíkt skilur lítið svigrúm fyrir minni eftirspurn, harðnandi samkeppni, tafir í vöruþróun eða öryggisvandamál sem gætu takmarkað nýtingu tækninnar.
Gríðarleg fjárfesting í reiknigetu framundan. Anthropic varði 7,33 ma. dala í reikniafl og innviði árið 2025 og hefur skuldbundið sig til 518 ma. dala í framtíðargreiðslur, aðallega til Broadcom, Google, Amazon og Microsoft. Um 80% skuldbindinganna eru óuppsegjanlegar eða greiðast óháð nýtingu, sem eykur áhættuna verulega ef eftirspurn vex hægar en áætlað er.
Anthropic er háð fáum viðskiptavinum og tæknirisum sem eru í senn samstarfsaðilar, birgjar og keppinautar. Tveir viðskiptavinir stóðu hvor um sig undir 12% teknanna og 47% teknanna runnu í gegnum Amazon og Google. Stofnendur munu jafnframt halda 50,1% atkvæðavægis í lykilákvörðunum og geta sett öryggissjónarmið og markmið um almannahag framar fjárhagslegum hagsmunum hluthafa.
Mikilvægt er þó að hafa í huga að um er að ræða drög en ekki endanlega útboðslýsingu og því geta fjárhagsupplýsingar, áhættuþættir og tímasetning tekið einhverjum breytingum áður en félagið verður skráð. Gögnin veita engu að síður áhugaverða innsýn í félagið og þá gríðarlegu fjárhagslegu, tæknilegu og samfélagslegu áhættu sem fjárfestar þurfa að meta. Stefnt hafði verið að skráningu Anthropic eftir kosningar í Bandaríkjunum (e. midterms) í nóvember, en endanleg dagsetning liggur ekki fyrir og gæti tekið breytingum eftir því sem útboðsferlinu vindur fram.







