Framfarir í gervigreind og lækkandi kostnaður við vélbúnað gera víðtæka innleiðingu vélmenna sífellt hagkvæmari. Á sama tíma auka öldrun þjóða, hár launakostnaður og flutningur framleiðslu nær heimamörkuðum hvatann til sjálfvirknivæðingar. Vélmennavæðing virðist því nálgast vendipunkt, sem gæti lagt grunn að aukinni framleiðni og skapað fjárfestingartækifæri víða í virðiskeðju vélmennatækni.
Lögmál Moores, sem lengi hefur verið viðmið í hálfleiðaraiðnaðinum, gerir ráð fyrir að afkastageta örgjörva tvöfaldist á um tveggja ára fresti1. Framþróun gervigreindar hefur þó verið mun hraðari, en lengd þeirra verkefna sem gervigreind getur leyst sjálfstætt hefur tvöfaldast á um sjö mánaða fresti2. Á sama tíma verða notkunarmöguleikar tækninnar sífellt fjölbreyttari. Framfarir í ökumannsaðstoðarkerfum (e. ADAS), tilkoma sjálfkeyrandi leigubíla og svokölluð sjón-, mál- og aðgerðalíkön (e. vision-language-action, VLA) marka þar sérstaklega mikilvæg þáttaskil og skapa ný tækifæri þvert á atvinnugreinar, til dæmis í landbúnaði.
Eftir áratuga framfarir í vélmennatækni er margt sem bendir til þess að tæknin nálgist nú vendipunkt. Þar fara saman öflugri gervigreindarlíkön, afkastameiri örgjörvar og lækkandi vélbúnaðarkostnaður. Fyrir vikið verða sífellt fleiri verkefni bæði tæknilega framkvæmanleg og hagkvæm að sjálfvirknivæða.
Á sama tíma skapa kerfislegir þættir aukna þörf fyrir slíkar lausnir. Öldrun þjóða og fækkun fólks á vinnufærum aldri minnka framboð vinnuafls víða um heim og auka hvata til að nýta vélmenni og aðrar sjálfvirkar lausnir. Áform um að færa framleiðslu aftur til heimalanda ýta í sömu átt en fyrirtæki þurfa þá að byggja upp framleiðslugetu við háan launakostnað og skort á starfsfólki. Samspil þessara þátta getur flýtt innleiðingu tækninnar og verður sjálfvirkni sífellt mikilvægari forsenda þess að auka afköst og viðhalda samkeppnishæfni.
Næsta skref í sjálfvirknivæðingu?
Sjálfvirknivæðing hefur verið undirstaða framleiðniaukningar síðustu aldar. Árið 1961 tók General Motors iðnaðarvélmennið Unimate í notkun við málmsteypu, þar sem það leysti starfsfólk undan hættulegum verkefnum við meðhöndlun heitra og þungra málmhluta. Ávinningurinn fólst bæði í auknu öryggi og hagkvæmari framleiðslu. Vélmenni gátu sinnt erfiðum og endurteknum verkefnum af meiri nákvæmni, aukið afköst á hvern starfsmann og tryggt jafnari gæði. Þessir kostir lögðu grunn að frekari útbreiðslu tækninnar.

Umfang vélmennavæðingar hefur aukist verulega síðan. Árið 2024 voru um fimm milljónir iðnaðarvélmenna í notkun á heimsvísu, ríflega þrefalt fleiri en áratug áður. Í bílaframleiðslu, rafeindaiðnaði og málmvinnslu eru þau orðin fastur liður í framleiðslunni. Þau sinna meðal annars endurteknum og nákvæmum verkefnum, auka afköst og létta fólki erfiða vinnu. Suður-Kórea, Kína og Japan hafa verið í fararbroddi þessarar þróunar, þar sem vélmenni gegna vaxandi hlutverki samhliða starfsfólki. Útbreiðsla þeirra sýnir hvernig sjálfvirkni hefur smám saman breytt vinnubrögðum og því hvernig vörur eru framleiddar.
Þótt Bandaríkin hafi verið meðal frumkvöðla á þessu sviði hefur notkun iðnaðarvélmenna þar ekki náð sömu útbreiðslu og í fremstu iðnríkjum Asíu. Árið 2023 voru um 307 iðnaðarvélmenni á hverja 10.000 starfsmenn í bandarískum framleiðsluiðnaði, samanborið við 1.220 í Suður-Kóreu. Enn virðist því talsvert svigrúm til aukinnar sjálfvirknivæðingar vestanhafs. Flutningur framleiðslu til lágkostnaðarlanda dró lengi úr hvata til að ráðast í slíka uppbyggingu og stefna vestræn ríki nú að því að efla innlendan iðnað og tryggja aukinn aðgang að mikilvægum vörum, meðal annars hálfleiðurum (sjá t.d CHIPS Act árið 2022) og lyfjum.
Á sama tíma og þörfin eykst verður tæknin betur í stakk búin til að mæta henni. Framfarir í gervigreind gera vélmennum kleift að greina umhverfi sitt betur, rata og aðlaga hreyfingar sínar að breyttum aðstæðum. Við það fjölgar þeim verkefnum sem hægt er að sjálfvirknivæða og notkunarsviðið nær út fyrir hefðbundnar framleiðslulínur. Áhrifin á framleiðni geta verið umtalsverð. Í rannsókn á vegum bandaríska viðskiptaráðuneytisins tengdist 1% aukning í fjölda iðnaðarvélmenna miðað við vinnuafl um 0,8% meiri framleiðni, að öðru óbreyttu. Eftir því sem vélmenni verða fjölhæfari geta fleiri atvinnugreinar notið þessa ávinnings.
Frá verksmiðjunni yfir í raunheiminn
Notkunarsvið vélmenna verður sífellt fjölbreyttara eftir því sem tæknin verður öflugri og hagkvæmari. Þróunin nær til fjölmargra verkefna utan hefðbundins iðnaðar, meðal annars í vöruflutningum, heilbrigðisþjónustu og samgöngum.
Innan heilbrigðisþjónustunnar hefur vélmennatækni meðal annars fest sig í sessi við skurðaðgerðir. Þar aðstoða sérhæfð kerfi lækna við flókin handtök sem krefjast mikillar nákvæmni og stöðugleika. Frekari framfarir geta aukið notagildi tækninnar, bætt vinnuaðstöðu starfsfólks og stutt við aukna afkastagetu þjónustunnar. Hraði innleiðingar ræðst þó meðal annars af áreiðanleika kerfanna, öryggi þeirra og þjálfun starfsfólks.
Sjálfkeyrandi ökutæki sýna jafnframt hvernig gervigreind getur tekist á við flókin verkefni við síbreytilegar aðstæður. Kerfin þurfa að greina umhverfið, sjá fyrir hegðun annarra vegfarenda og ákveða hvernig bregðast skuli við í rauntíma. Sjálfkeyrsla er því meðal krefjandi viðfangsefna efnislegrar gervigreindar. Aukin notkun hennar í atvinnuskyni sýnir hvernig samspil skynjunar, ákvarðanatöku og stýringar er smám saman að skila sér í hagnýtum lausnum utan afmarkaðra og fyrirsjáanlegra vinnusvæða.
Mannlík vélmenni (e. humanoids)
Mannlík vélmenni gætu orðið mikilvægur liður í aukinni sjálfvirknivæðingu atvinnulífsins. Helsti kostur þeirra er að þau eru hönnuð til að vinna í umhverfi sem þegar er sniðið að fólki þar sem hurðir, stigar, hillur og verkfæri taka öll mið af líkamsbyggingu okkar og hreyfigetu. Hingað til hefur innleiðing vélmenna oft kallað á verulegar breytingar á vinnuumhverfinu, meðal annars með uppsetningu færibanda og sérhæfðs búnaðar. Með mannlíkum vélmennum gæti orðið breyting þar á. Takist að gera þeim kleift að læra ný verkefni og vinna á öruggan hátt við hlið fólks verður hægt að nýta þau í núverandi húsnæði án umfangsmikilla breytinga á aðstöðu.

Þá hafa fjársterk fyrirtæki í auknum mæli beint sjónum sínum að þeim tækifærum sem í tækninni felast. Tesla byggir þróun Optimus meðal annars á reynslu sinni af hugbúnaði, vélbúnaði og stórfelldri framleiðslu. Elon Musk hefur sagst vænta þess að sala vélmennisins til almennings geti hafist fyrir árslok 2027, að því gefnu að það uppfylli kröfur um öryggi, áreiðanleika og notagildi. Hyundai stefnir að því að taka Atlas-vélmenni Boston Dynamics í notkun í verksmiðjum sínum frá 2028 og byggja upp framleiðslugetu fyrir 30.000 vélmenni á ári. Á sama tíma vinna fyrirtæki á borð við Figure AI, Agility Robotics, Unitree, UBTECH og Shenzhen Dobot að því að þróa tæknina og auka umsvif sín í samstarfi við iðnfyrirtæki.
Framfarir í gervigreind og vélmennatækni geta á komandi árum breytt því hvernig vörur eru framleiddar, þjónusta veitt og störf unnin. Á sama tíma og öldrun þjóða þrengir framboð vinnuafls opnast nýjar leiðir til að auka afköst og bæta nýtingu þess. Víðtækari notkun tækninnar gæti þannig orðið mikilvæg undirstaða framleiðniaukningar og hagvaxtar og haft áhrif á lífskjör og samkeppnisstöðu hagkerfa til langs tíma.
¹ Moore, G. E. (1975). Progress in digital integrated electronics. Technical Digest of the International Electron Devices Meeting. IEEE. https://uio.no/studier/emner/matnat/ifi/IN3030/v23/teaching-materials/gordon_moore_1975_speech-w-highlights.pdf
² Kwa, T., West, B. o.fl (2025). Measuring AI ability to complete long tasks. arXiv. https://doi.org/10.48550/arXiv.2503.14499





