Gríðarleg uppbygging gervigreindar í dag hvílir á væntingum um ávinning tækninnar í framtíðinni: að fyrirtæki og heimili njóti af henni nægan ávinning til þess að vilja greiða fyrir hana. Hluti teknanna getur komið til með tilfærslu útgjalda, þegar gervigreind kemur í stað annarrar þjónustu. Til lengri tíma mun uppbyggingin þó vart standa undir sér nema í innleiðingu tækninnar felist aukin framleiðni.
Innleiðing gervigreindar er í fullum gangi og rannsóknir sýna umtalsverðan framleiðniávinning við afmörkuð verkefni. Í þjóðhagsreikningum sést hlutur tækninnar þó enn ekki skýrt. Hvers vegna skilar ávinningur sér ekki með skýrari hætti í framleiðnitölum fyrir hagkerfið?
Bilið skýrist meðal annars af tvennu: það tekur tíma að laga starfsemina að tækninni, og hluti þeirrar aðlögunar mælist illa í hagtölum.

Í grein sem við birtum fyrr í sumar veltum við fyrir okkur þeim breytingum sem þurfa að fylgja innleiðingu gervigreindar til að hún skili aukinni framleiðni. Þar drógum við fram sögulega hliðstæðu við rafvæðingu verksmiðja. Eins og Paul David (1990) benti á voru rafmótorar fyrst einfaldlega settir í stað gufuvéla án þess að skipulagi framleiðslunnar væri breytt. Framleiðniaukningin lét því á sér standa áratugum saman og kom að verulegu leyti fram þegar verksmiðjur og vinnuferlar voru endurhannaðir til að nýta möguleika rafmagnsins. Sambærilegt mynstur fylgdi innleiðingu einkatölvunnar: ávinningurinn fólst ekki aðeins í nýjum búnaði, heldur í breyttu vinnulagi og skipulagi.
Aðlögunin tekur ekki aðeins tíma heldur veldur hún líka mælivanda. Brynjolfsson, Rock og Syverson (2021) benda á að ný tækni krefjist viðbótarfjárfestinga í þekkingu, verkferlum og skipulagi sem koma ekki nema að hluta fram sem fjárfesting í þjóðhagsreikningum. Vinnustundirnar sem fara í að byggja upp þessa getu mælast hins vegar strax. Mæld framleiðni getur því dalað í fyrstu þótt raunveruleg framleiðni geri það ekki, og síðar orðið ofmetin þegar afrakstur fjárfestingarinnar fer að mælast. Þetta mynstur kalla þeir J-kúrfu framleiðni.
Til að gervigreind skili aukinni framleiðni þarf að laga vinnulag, færni og skipulag að tækninni.
Myndin hér að ofan sýnir þetta ferli. Fyrst fer tími og fjármagn í þjálfun starfsfólks, endurhönnun verkferla og aðlögun kerfa, og mæld framleiðni getur jafnvel dalað. Þegar sú fjárfesting fer að skila sér tekur við uppskerufasinn og mæld framleiðni eykst. Aðlögunin getur verið sérstaklega tímafrek þar sem kerfi og vinnubrögð hafa þróast í áratugi. Það getur því verið mun fljótlegra að taka gervigreind í notkun en að laga starfsemina að henni.
Ef Claude sér um pappírsvinnu skrifstofufólks en vinnustundir og magn og gæði afurða haldast óbreytt hefur framleiðnin ekki aukist, þótt vinnan hafi orðið auðveldari. Tíminn sem sparast þarf að nýtast til aukinnar verðmætasköpunar eða gera fyrirtækinu kleift að skila sömu afköstum með færri vinnustundum.
En hvar stöndum við?
Staðan er misjöfn eftir því hvar er litið: ávinningurinn er skýr við einstök verkefni, óskýrari í rekstri fyrirtækja og enn óljós í þjóðhagsreikningum.
Við einstök verkefni er ávinningurinn skýr. Í þremur slembitilraunum meðal 4.867 forritara fundu Cui o.fl. (2026) að gervigreindaraðstoð jók fjölda lokinna verkefna um 26% að meðaltali. Reynsluminni forritarar nýttu tæknina meira og höfðu meiri ávinning af henni, en niðurstöðurnar voru breytilegar milli tilrauna. Þær sýna möguleika tækninnar í forritun, en fjöldi lokinna verkefna er ekki tæmandi mælikvarði á gæði vinnunnar eða ávinning alls rekstrarins.
Í rekstri fyrirtækja í heild er ávinningurinn síður sýnilegur. Í könnun Yotzov o.fl. (2026) meðal tæplega 6.000 stjórnenda í fjórum löndum notuðu um 70% fyrirtækja gervigreind, en yfir 80% sögðu hana ekki hafa haft áhrif á framleiðni eða starfsmannafjölda undanfarin þrjú ár. Baslandze o.fl. (2026) finna jafnframt að mat stjórnenda á framleiðniávinningnum sé jákvæðara en mælingar gefa til kynna. Það gæti meðal annars skýrst af því að tímasparnaðurinn komi fljótt fram í daglegri vinnu en tekjuávinningurinn síðar.
Þjóðhagstölur sýna sterkari framleiðnivöxt, en hlutur gervigreindar er ekki skýr. Samkvæmt bandarísku vinnumálastofnuninni, BLS, jókst framleiðni vinnuafls í fyrirtækjarekstri utan landbúnaðar um 2,2% milli ára á öðrum ársfjórðungi 2026. Frá lokum árs 2019 hefur árlegur vöxtur verið 2,1% að meðaltali, samanborið við 1,5% á fyrri hagsveiflu. Vöxturinn er þannig meiri en á fyrra tímabili, en jafngildir langtímameðaltalinu frá 1947. Tölurnar einar og sér segja ekki hversu mikið má rekja til gervigreindar.
Hvað þarf til að leysa framleiðnina úr fjötrunum?
Breyta þarf vinnulagi til að tæknin skili árangri. Í könnun McKinsey (2026) segja aðeins 37% svarenda að gervigreind hafi bætt rekstrarhagnað fyrirtækis þeirra og um 6% teljast ná verulegum árangri. Nær þrír fjórðu fyrirtækjanna í þeim hópi hafa endurhannað vinnuferla í kringum tæknina, samanborið við fjórðung annarra. Virk aðkoma stjórnenda einkennir einnig hópinn. Könnunin sýnir fylgni fremur en orsakasamband, en bendir til þess að skipulag innleiðingarinnar skipti miklu.
Innleiða þarf gervigreind fyrst þar sem hún getur skilað mestum ávinningi. Í slembitilraunum hjá alþjóðlegri netverslun fundu Fang o.fl. (2026) að áhrif tækninnar á sölu í sjö vinnuferlum voru allt frá engum mælanlegum áhrifum upp í 16% aukningu. Munurinn réðst af því hversu miklu gervigreind bætti við núverandi vinnulag. Ávinningurinn fólst einkum í því að fleiri viðskiptavinir luku kaupum. Þetta bendir til þess að fyrirtæki ættu að byrja þar sem skýrt svigrúm er til umbóta og hægt er að mæla árangurinn. Bætt þjónusta og nýsköpun geta þannig skilað auknum tekjum samhliða hagræðingu.
Þjóðhagslegur ávinningur krefst þess að fleiri fyrirtæki geti nýtt tæknina. Samkvæmt samantekt OECD (2025) notuðu um 12% lítilla fyrirtækja gervigreind, samanborið við 40% stórra fyrirtækja. Þjálfun og stafrænir innviðir skipta því miklu fyrir víðtækari innleiðingu. Rekstrarumhverfið hefur einnig áhrif: Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (2025) áætlar um 1% uppsafnaða framleiðniaukningu í Evrópu á fimm árum og bendir á að sundraðir markaðir, takmarkað fjármagn til nýsköpunar og hindranir á hreyfanleika vinnuafls geti haldið aftur af ávinningnum. Tækniframfarir þurfa því að fara saman við umbætur sem auðvelda fyrirtækjum að fjárfesta, breyta starfsemi sinni og vaxa.




